HROSSARÆKT
Gæðaátak
á hrossaræktarbúum
Í
þessu verkefni verður farið
inn á hrossaræktarbú
og þeim hjálpað með
ráðgjöf að bæta
framleiðsluna og jafnframt afkomuna.
Verður þá unnið
með búið allt frá
framleiðslu að markaðssetningu
og sölu. Í byrjun verður
verkið unnið í samráði
við sex til átta bú
í Skagafirði, en þetta
er gert til að þróa
starfið áður en það
verður boðið á landsvísu.
Verkefnið er unnið í
samstarfi við Hólaskóla
og hrossaræktar samband Skagafjarðar.
HESTAMENNSKA[pP]>volam offline download
Sögusetur
íslenska hestsins
Í bígerð er að
reisa íslenska hestinum veglegt
safn þar sem sýnd er
á lifandi hátt, saga
hestsins, notkun og eiginleikar. Einnig
er ráðgert að setrið
geti boðið uppá aðstöðu
til vísindarannsókna
á íslenska hestinum.
Þetta er verkefni sem Hestamiðstöð
Íslands hefur tekið að
sér að athuga nánar
og er frumkönnun á verkefninu
að fara í gang. Í
þessari frumkönnun verður
rannsakað hversu umfangsmikið
verkið getur orðið, áætlað
um kostnað og tekjumöguleika
ásamt því að
staðarval fyrir safnið verður
rannsakað. Áætlað
er að frumkönnuninni verði
lokið 15. ágúst
2000 og þá ráðist
í gerð viðskiptaáætlunar
ef þykir hæfa. Viðskiptaáætlunin
ætti þá að
vera tilbúin í febrúar
2001.[pP]>volam offline download
Reiðhöll
Hestamiðstöð Íslands
hefur keypt hlutafé í
reiðhöll á Sauðárkróki.
Stjórn Hestamiðstöðvarinnar
kom málinu af stað á
sínum tíma, og hefur
nú keypt hlut í hlutafélaginu
Flugu, sem ætlað er að
byggja og reka reiðhöllina.
Reiðhöllin sem slík
mun gagnast Hestamiðstöðinni
á ýmsan hátt.
Til að mynda skapar hún
aðstöðu fyrir verklega
kennslu í hestamennsku við
FNV, og einnig gefur hún aukna
möguleika á að prófa
tilraunaverkefnin sem eru hér
í gangi. Einnig verður
fylgst með hvaða breytingar
verða á hrossaræktun
og almennri hestamennsku við tilkomu
aðstöðu sem þessarar.[pP]>volam offline download
HESTAÍÞRÓTTIR[pP]>volam offline download
Námsbraut
við FNV
Hestamiðstöð Íslands
vinnur að því að
kennsla í hestamennsku og reiðmennsku
geti hafist í framhaldsskólum
landsins. Liður í þessari
vinnu er samstarfssamningur við
Hólaskóla og Fjölbrautarskóla
Norðurlands vestra (FNV), um tilraunakennslu
við FNV á næstu vorönn
(2001). Námsgagnagerðin
fyrir þetta nám hefur
Átaksverkefni til eflingar
hrossarækt og hestamennsku
með höndum, en tilraunakennslan
við FNV er til þess fallin
að móta kennsluaðferðir
og slípa til námsefnið.
Áætlað er að
kennd verði fyrstu fjögur
stig knapakerfisins á fyrstu
önninni, en fimmta stigið
verði kennt seinna. Námið
verður skráð sem stígur
á náttúrufræðabraut.[pP]>volam offline download
HESTATENGD
FERÐAÞJÓNUSTA[pP]>volam offline download
Gæðakönnun
Verkefni hestamiðstöðvarinnar
hvað varðar gæði
í hestatengdri ferðaþjónustu
er tvíþætt. Annarsvegar
er gerð könnun hjá
notendum þjónustunnar.
Þessi könnun á að
leiða í ljós hvað
það er sem ferðamenn
sækjast eftir í hestaferðum,
bæði löngum og stuttum.
Einnig verður athugað hvernig
þeir upplifa þá
þjónustu sem veitt er.
Hinsvegar verður gerð könnun
á rekstri fyrirtækja
í hestatengdri ferðaþjónustu.
Með þessu á að
finna út hvernig fyrirtækin
geta tilpassað þjónustuna
að væntingum viðskiptavinarins,
og ekki minnst, finna út hvernig
hægt sé að hagræða
í fyrirtækjunum þannig
að þau gefi betur af sér.
Samhliða þessu verður
gerð könnun á hversu
mikilvæg hestatengd ferðaþjónusta
er fyrir ferðamannalandið
Ísland. Verkefnið fer af
stað sumarið 2000 og áætlað
er að hafa niðurstöður
klárar í október
2003.[pP]>volam offline download
Markaðsmál
Markaðsmál hestatengdrar
ferðaþjónustu hafa
verið misgóð í
gegnum tíðna. Margir einstaklingar
og lítil fyrirtæki hafa
verið að auglýsa á
markaði sem flýtur í
allskyns upplýsingum og oft
ekki haft árangur erfiðis
síns. Hestamiðstöðin
hefur tekið þetta upp og
mun standa fyrir tilraunaverkefni
þar sem nokkrum aðillum
í hestatengdri ferðaþjónustu
verður safnað saman undir
eitt merki. Áætlað
er að þetta verkefni fari
í gang á haustdögum
2000 og reynsla verði komin á
það að tveimur árum
liðnum. Með þessu verkefni
er verið að reyna að setja
upp líkan að markaðsfyrirtæki
í hestatengdri ferðaþjónustu
sem verður hægt að yfirfæra
og stofna um allt land.
[pP]>volam offline download
[pP]>volam offline download
|